Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Helga
  • Stađur: Reykjavík
  • Atvinna: Blóm og Garđar
  • Hjúskaparstađa: Gift

ný síđa

03. október 2008 klukkan 10:16
www.helgaherbalife.bloggar.is

Hćtt í bili

26. september 2008 klukkan 08:54
Ég er hætt að blogga í bili, nennissiggi

Prjóna sokka

24. september 2008 klukkan 09:44
Prjóna sokka, prjóna sokka og svo snúa þeir sér í hring
hvað segiði, eruði ekki komin í jólastuð?? vá ég bara vaknaði svona í gær, og get ekki beðið eftir jólunum, tja eða kannski ekki beint jólunum, heldur desember mánuð, því þá eru allir í góðu skapi, samt finnst mér oftast jólin mjög stressandi, eins gott að það kom allt vel útúr stresshormónunum í mér, ég hefði ekki höndlað jólin annars....

og nú er ég örugglega búin að láta þig fá þetta lag á heilann ?

Ég á samt að vera að klára að prjóna húfuna mína, ætli ég kíki ekki á hana á eftir. Ég þurfti nauðsynlega húfu áðan, því ég vaknaði og hárið á mér var gjörsamlega allt útí loftið, ég skelli einhverju á mig....

ég er svo hissa, það er smá sól úti....en hún fer örugglega bráðum

teljarinn virkar

23. september 2008 klukkan 22:49
jei teljarinn virkar....vúhú :)
ég get ekki skrifað meira, fór seint að sofa í gær (tja eins og flesta aðra daga þessa dagana) og núna er bara kominn tími á rúmið aftur...hlakka til að hoppa í rúmið og sofna eins og engill.

rok

17. september 2008 klukkan 13:17
þvílíka veðrið þessa dagana, og það fer verst með hárið á mér. ég kann ekkert á það svona stutt í þessu roki...hahaha :)

Ég er annars heima þessa dagana eins og flest aðra daga síðustu 3 vikur eða svo. Er núna alveg að fá nóg og get bara ekki beðið að komast í ræktina. Rosalega á það eftir að vera gott.

Muniði eftir þessum hjólaskautum


Já, þetta voru sko töff skautar einu sinni. Ég er ara því miður of löt á línuskautana mína og ég hef ekki farið á þá í 2-3 ár eða  svo. Það er bara skandall.

Föstudagsblogg

12. september 2008 klukkan 13:49
Er ekki best að blogga smá. Komin tími til :)
ég er bara búin að vera að hanga heima og prjóna, er að prjóna á mig flotta húfu og ég vona svo innilega að hún takist :)
Svo er ég búin með þrjú ullarsokkapör. Einnig er ég með sjónvarpið í gangi og horfi á suma þætti, já svona er lífið mitt í dag.

Mig dreymdi draum um daginn, sem ég myndi túlka þannig að ég væri á krossgötum. Já ég held það nebla. Ég vinn örugglega ekki með Þóri í vetur og er svona að spá í að finna mér vinnu, en við hvað???? sko ég hef alltaf verið í afgreiðslustörfum, sem mér finnst reyndar skemmtilegt, og ég er mjög góð í þannig störfum. Svo langar mig að prófa annan, en veit ekki hvað það getur. svo vil ég vinnutíma 9-15, ætli það sé possible??
þetta er svona í hausnum á mér þessa dagana. Sem getur líka breyst á morgun þess vegna...hehehe... Helga óákveðna.

Unnur er að bjóða mér í konuboð í kvöld og þar munum við hitta fullt af konum, æji ég segi stelpum :) og það verður örugglega fjör. ég fór meiraðsegja í klipp og lit og er orðin rosa ljóshærð núna.

Ég var að komast að því að mér væri sárt saknað í herþjálfun, ég sakna þess líka, en ekki alveg tími í það núna. Ætla að kíkja eftir 1-2 mánuð. en alltaf er boot camp að toga í mig, og ég þekki nokkra þar, svo er ég líka í World Class í vetur, ji það verður nóg að gera :)

Góða helgi

rabbabararúna

06. september 2008 klukkan 19:15
hvar fær maður rabbabara?????
mig vantar

jáhá

04. september 2008 klukkan 08:29
sumarveður síðustu daga hér, en hvað kom fyrir í Kenýu...jeminn

http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2008/09/03/snjor_i_kenya/

sumarveđur

03. september 2008 klukkan 10:31
já, það er sko sumarveður þessa dagana. Ég get svosem ekkert notið þes, en ætla að reyna eins og ég get að komast út á eftir og sitja og prjóna. Já núverður prjónað sokka fyrir veturinn á liðið :)

Ég er ekki með neina verki, er reyndar að taka inn verkjalyf og svona, en vá, ég bjóst við verkjum og leiðindum eftir aðgerðina.
Það fer reyndar að líða að því að maður fái hausverk á svona inniveru, þannig að ég hef gott af því að kíkja aðeins út. Heyri að það er verið aðs lá hérna úti núna, svo góð lykt af nýslegnu grasi

ég er að verða búin með heila seríu af gossip girl, finnst þetta alveg ágætir þættir, svo þarf ég að komast í fleiri þætti, og ætla svo að horfa á eina bíómynd... :)

well, hafið það gott

Atburđarteljari